Lofudum Samonthu hvolp fyrir nokkru, med thvi skilyrdi ad hun yrdi god i viss marga daga. Bjuggum til svona chart thar sem faer limmida fyrir hvern dag sem hun er god. Svo eg setti auglysingar a netid ef einhver aetti hvolp fyrir okkur, frian eda odyran, thar sem flestir eru um £200-£1100!!! Svo eg bjost nu ekki vid neinu og vorum buin ad akveda ad ef vid fengum engan thannig, tha er haegt ad bjarga hundi fyrir £60 fra baenum en audvitad langadi okkur frekar i hvolp. Haldidi ad eg hafi ekki fengid simhringingu i gaerkvoldi
10 vikna gomul tik sem eg fer ad saekja a morgun

Greyid konan hafdi bedid um hvolp fra vini sinum thegar hennar var hvolpafull en loksins thegar hun fekk hana var madurinn hennar farin fra henni og hun ein eftir med 3ja ara barn og eins ars og getur ekki stadid i thessu ollu nuna og vildi ad hvolpurinn faeri til annarrar fjolskyldu thar sem hun myndi fa umonnun sem hun tharf.
Aetlum ekki ad segja neitt vid Samonthu, hun heldur ad hun thurfi 15 fleiri limmida thangad til hun faer hvolp. Hugsudum lika ad folk gaeti skipt um skodun, svo thad vaeri hraedilegt ad segja henni og fa svo engan

Kat aetlar ad skutla mer i fyrramalid, svo eg aetla ad fa Chris ad hafa myndavelina tilbuna thegar eg kem heim

Annars for Samantha ad grata i morgun

Hun vildi tala um hunda (eins og alltaf) svo eg sagdi henni fra Donnu, gamla hundinum minum, hvernig hun brosti alltaf og a endanum spurdi Samantha hvar hun vaeri nuna. Og eg vil nu vera hreinskilin vid hana og fa hana til ad skilja ad allt deyr tha sagdi henni ad Donna vaeri dain. Og thad var thad!!! Hun for bara ad hagrata utaf Donnu sem do fyrir 20 arum

Svo eg held ad thad se eins gott ad vid seum ad fa hvolp, meiri likur ad hann deyji ekki fyrr en hun er ordin miklu eldri.
Set kannski myndir inn a morgun af nyja fjolskyldumedliminum ef eg hef tima, er nefnilega ad vinna a morgun lika.
Kvedja
Nanna